Katrín Hertogaynja var sumarleg þegar hún mætti á Wimbledon-mótið með eiginmanni sínum, Vilhjálmi Bretaprins.
Hertogaynjan klæddist hvítum kjól með fallegu draumsóleyjarmynstri frá uppáhaldshönnuði hennar, Catherine Walker & Co. Einnig skartaði hún fallegum gulleyrnalokkum frá Cassandra Goad sem kosta tæplega 300.000 krónur íslenskar.
Aðrir fylgihlutir Katrínar voru Bvlgari-sólgleraugu og hvít handtaska hönnuð af Viktoriu Beckham.