Þórunn Antonía komin með heimili

Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir er búin að finna samastað næstu …
Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir er búin að finna samastað næstu mánuðina. mbl.is/Árni Sæberg

Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir og börn hennar tvö eru komin með samastað næstu þrjá og hálfan mánuð. Frá þessu greinir Þórunn á Instagram en þau hafa verið á hrakhólum eftir að mygla fannst í íbúð þeirra í Vesturbæ Reykjavíkur.

„Jæja… 9 áfangastöðum seinna erum við komin með fastan samastað í 3,5 mánuði,“ skrifar Þórunn við mynd af sér.

Þórunn sagði frá því í vetur að þau fjölskyldan neyddust til að flytja út af heimilinu vegna myglunnar, en hún hafði mikil áhrif á heilsu þeirra allra. Illa gekk í húsnæðisleitinni líkt og Þórunn segir frá og hafa þau þurft að færa sig milli staða.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál