Rúnar og Guðrún eignuðust son

Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason.
Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason. mbl.is/Styrmir Kári

Rúnar Freyr Gíslason og Guðrún Jóna Stefánsdóttur eignuðust son í nótt. Sonurinn er barn númer sex í barnahóp þeirra. 

Móður og syni heilsast vel en drengurinn var 13 merkur og 49 sm þegar hann kom í heiminn. 

Rúnar Freyr átti þrjú börn áður en hann og Guðrún Jóna hnutu um hvort annað og átti hún eitt barn. Árið 2015 eignuðust þau dóttur en Smartland sagði frá fæðingu hennar á sínum tíma.  

Smartland óskar Rúnari Frey og Guðrúnu Jónu til hamingju með fæðingu sonarins og þessa stóru fjölskyldu. 

Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason.
Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál