Karlmenn trúa því ekki að hún geti bara fengið fullnægingu í einni stellingu

Unsplash/We-Vibe Toys

Kona ein fær aðeins fullnægingu í einni stellingu, þegar hún er ofan á. Samt sem áður reyna karlmenn að telja henni trú um annað. Hún skilur ekki hvers vegna og veit ekki hvernig hún á að bregðast við því. Hún leitar því ráða hjá sérfræðingi.

Ég get aðeins fengið fullnægingu í kynlífi ef ég er ofan á. Þetta var aldrei vandamál með fyrrverandi eiginmanni mínum þegar við vorum gift. Þegar ég reyni að útskýra þetta fyrir þeim sem ég sef hjá eftir skilnaðinn, fer egóið þeirra á fullt og þeir reyna að fullvissa mig um að ég muni sko fá fullnægingu með þeim í trúboðastellingunni. Það er hins vegar ekki raunin. Hvað á ég að gera?

Svar sérfræðingsins:

Þú þekkir sjálfa þig og hefur fundið réttu leiðina fyrir þig til að ná fullnægingu. Varastu þá sem reyna að sannfæra þig um annað. Karlmenn sem halda að þeim muni aldrei mistakast að fullnægja konu með því að setja getnaðarlim sinn inn í leggöng konunnar skortir rétta þekkingu á lífeðlisfræði kvenna og hvernig þær bregðast við örvun. Þegar þú ert ofan á ert þú með stjórnina. Þannig getur þú náð hámarksörvun með nákvæmlega þeim þrýstingi sem þú þarft. Finndu maka sem dáist að því hvernig þú tekur ábyrgð á eigin ánægju og forðastu þá sem vita ekki betur.

Guardian

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál