10 leiðir til að missa kærastann á 10 dögum

Greinin fjallar um 10 áhrifaríkar leiðir til að missa kærastann …
Greinin fjallar um 10 áhrifaríkar leiðir til að missa kærastann á jafnmörgum dögum. Ljósmynd/Thinkstockphotos

Sambönd eru áhugaverð. Við fæðumst inn í lífið með þann eina hæfileika að elska og vera elskuð. En einhversstaðar á leiðinni töpum við hæfni okkar og förum út af veginum.

Ástæður þessa geta verið margvíslegar. Þegar fólk tengir við uppruna sinn og horfir fallega tilbaka má sjá að þær eru allar eðlilegar, eiga upptök sín vanalega í ástleysi þeirra sem annast okkur, eða misskilning okkar á þeim aðstæðum.

Jafnvel þó við höfum verið elskuð í kaf í æsku, þá tekst sumum okkar að hrasa á þessari beinu braut skilyrðislausrar ástar. Vanalega til þess eins, að geta stigið upp, dustað af okkur rykið og fundið leiðina aftur heim.

Eftirfarandi leiðir eru leiðir frá beinu brautinni. Í raun 10 leiðir til að missa kærasta á 10 dögum.

Dagur 1, gleymdu stefnumótum

Besta leiðin til að hefja samband sem fólki langar að endist í tíu daga eða skemur er að fara í slíkt samband með bundið fyrir augun. Að fara á stefnumót og kynnast einstaklingnum í ró og næði tekur of mikinn tíma.

Að sleppa stefnumótinu og fara beint í bólið er leiðin sem mælt er með hér. Settu kærastann nýja á stall og gerðu hann að guðlegri veru. 

Ef þig langar að missa kærastann strax skaltu vanda það hvernig þú útfærir koddahjalið. Hér þarf að muna að ræða væntanlegt brúðkaup, brúðarkjólinn, kirkjuna og barneignir. Leyfðu öllum hugsunum um hvernig þú ert að máta hann inn í líf þitt koma fram á þessum fyrstu stigum sambandsins.

Dagur 2, segðu öllum

Eftir fyrstu kynni er mikilvægt að muna að segja öllum sem þú þekkir frá nýja kærastanum. Talaðu um hann sem sálufélaga, eða hinn eina sanna. Póstaðu mynd af ykkur á Instagram eða Facebook. Þú getur notað forrit eins og „Photo Collage“ til að setja myndir af ykkur saman á eina mynd. Uppfærðu þessa mynd sem þína mynd á Facebook og settu ykkur í samband þar.

Dagur 3, vertu í bandi

Eitt sterkasta tólið í verkfærakassanum um hvernig á að missa kærastann á 10 dögum er að koma sér í samband við hann oft á dag. Stylltu símann þinn á klukkustunda fresti og láttu hann vita að þú ert að hugsa um hann ALLAN daginn. 

Ef hann er að fara á mikilvægan fund, taktu þá upp tólið og óskaðu honum góðs gengis. Gefðu honum ráð fyrir fundinn og bjallaðu svo á hann á miðjum fundinum.

Settu Like á allar myndirnar hans á Instagram, helst í dag! Mundu það eru ótal leiðir í þessu samhengi. Þú getur mætt í vinnuna. Í ræktina. Út að hlaupa með honum. Muna bara að kæfa hann í ást þessa fyrstu daga. Það virkar alltaf!

Dagur 4, taktu til hendinni

Þegar þú vilt missa kærastann á 10 dögum þarftu að vera búin að setja fullt af þínu dóti í kassa eða tösku og koma þessu fyrir heima hjá honum sem fyrst. Fylltu skápana hans af túrtöppum og fleiri hlutum sem eru viðkvæmir fyrir stráka. 

Settu tannburstan þinn í hans tannbursta hólf. Kauptu skreytingar og aukahluti sem gera íbúðina hans stelpulegri. Spreyjaðu ilmvatninu þínu á koddann hans og settu nafnið þitt á bjölluna heima hjá honum.

Dagur 5, gleymdu þér

Frábær leið til að losna við kærastann er að gleyma sjálfum sér. Ekki stíga hægt og rólega út úr öllu því sem hann hreifst af í byrjun, gerðu það strax. Ef þú vilt verða frábær í þessu, skoðaðu þá tónlistina sem hann elskar. Fótboltaliðið sem hann heldur með. Steldu fötunum hans úr fataskápnum. Hættu að hafa þig til eins og áður og stígðu bara inn í að vera hann. 

Með þessu móti verðið þið eitt. Allt súrefni ykkar á milli mun hverfa og skilin þar sem þú byrjar og hann endar verða að engu. Á þessari leið minnkar öll spenna í sambandinu og þú losnar við að stunda kynlíf með kærastanum. Enda snýst kynlíf um nánd og hver þarf nánd þegar hann og þú ert eitt? Eins verður óþarfi að deila lífinu, brúa bilið ykkar á milli og skapa spennu. Það er engin brú að fara yfir. Best væri að byrja á þessu á fyrsta degi, því aðferðin tekur smávegis tíma að uppgötvast.

Dagur 6, vertu afbrýðissöm

Þegar við stöndum í ljósinu og kærleikanum í ást og sátt við umhverfið þá verða allar konur á vegi okkar systur. Við vitum hvað er fallegt við okkur, og þökkum fyrir hvað er fallegt í þeim. Þetta skyldi forðast sem heitann eldinn ef þú vilt stoppa sambandið og missa kærastann.

Byrjaðu að fylgjast með því hvað hann er að spá. Best er að þróa með sér hæfileikann til að lesa hugsanir og fáðu á hreint hvað það er sem hann raunverulega fílar. 

Til að þróa þetta áfram og lifa og anda þessa aðferð er nauðsynlegt að skoða tölvuna hans og símann. Farðu niðrí vinnu til hans og sjáðu hvort ekki séu einhverjar þar sem hann gæti verið að spá í frekar en þig. Eins þegar hann fer út með vinunum. Þá er gott að fara bara út með þeim líka og missa af engu. Ef hann fer út á dansgólfið. Farðu þangað líka og sýndu honum að þú kannt að dansa.

Dagur 7, reyndu að bregðast við öllu

Þegar maður ætlar að tapa kærastanum er gott að vera með viðbrögðin í lagi. Hér þarf maður alltaf að vera á tánum og gott að vera búin að undirbúa sig vel á samfélagsmiðlum með hvað er í lagi og hvað ekki. Sem dæmi ef hann kemur með blóm og boðsmiða í leikhús til þín á afmælisdaginn, vertu búin að skoða vel og vandlega hvað aðrar stelpur hafa fengið á afmælisdaginn sinn samkvæmt Facebook. Ef þú vilt fara alla leið í þessari aðferð, opnaðu þá Instagram og skoðaðu fræga fólkið. Það er samanburður sem segir sex.

Sem dæmi, er afmælisdagurinn þinn eitthvað á borð við afmælis dag Kim Kardashian? Ef ekki, þá er gott að bregðast við og það vel og vandlega. Farðu upp á háa C-ið og láttu hann heyra það. Auðvitað er best að segja ekki af hverju þú ert ósátt, hafa þetta allt smávegis óskýrt. Hann mun lesa hugsanir þínar, eða ekki. En sambandið verður ónýtt fljótt. 

Fleiri hlutir virka vel hér, sem dæmi: Ef hann tekur þvottinn og gerir það ekki eins og þú. Muna að bregðast við. Gleymir hann að fara í búðina, eða verslar annað inn en þú ert vön? Bregðast við. Horfir hann á þig eins og mömmu sína? Bregðast við..... Svona mætti lengi áfram telja. Eftir nokkurra daga viðbrögð við öllu verður sambandið nánast ónýtt svo ekki vanmeta þessa aðferð eina sekúndu.

Dagur 8, láttu hann taka ábyrgð á þér

Í heilbrigðum samböndum taka einstaklingar ábyrgð á sjálfum sér, en deila svo með maka sínum hluta af lífinu, í gleði og kærleika. Þetta ætlar þú ekki að gera ef þú vilt að sambandið endi innan 10 daga. 

Finndu út hvað þú vilt ekki taka ábyrgð á hjá þér. Eru það peningar? Tilfinningar? Það getur verið flókið að finna út úr þessu en vertu fljót og komdu þessu til leiðar strax inn í sambandið. 

Hér verður þú að muna að ef þú ætlar að taka ábyrgð á einhverju í staðinn gætir þú verið að flækja þig í meðvirkan dans það sem eftir er ævinnar, svo reyndu að forðast það sem heitann eldinn. Láttu hann heyra sem fyrst hvað hann á að taka ábyrgð á í þínu lífi og reyndu að nota barna röddina þína til að túlka það. Mundu þig 10 ára, settu þig í stellingar og tjáðu þig af einlægni. Þetta hittir í mark á núll einni og þú sérð undir sólann á kærastanum í vikunni.

Dagur 9, stjórnaðu honum

Burt séð frá því hvort hann sé drauma kærastinn þinn eða ekki (enda var enginn tími til að komast að því í byrjun), finndu þá hinn eina rétta fyrir þig. Gott er að leita í smiðju kvikmynda. Ryan Gosling er dýrðlegur. Charlie Siem fiðluleikari er himneskur. Notaðu nokkra daga í að dagdreyma um hvernig væri að búa með þessum manni. Skrifaðu niður hvað þeir myndu gera og segja og haltu fast í þennan lista.

Byrjaðu svo að stjóna kærastanum þannig að hann verði eins og draumaprinsinn. Þú þarft ekki að dulbúa þig í þessum þætti. En kannski er best að halda leyndu hver draumaprinsinn raunverulega er, en ef hann er leikari á borð við Ryan Gosling, er gott að hafa bíó kvöld hvert kvöld með leikaranum, svo það fari inn í undirmeðvitund hans hvernig hann raunverulega á að líta út og haga sér.

Vertu reið þegar þú stjórnar, ákveðin og ekki draga neitt undan. 

Dagur 10, byrjaðu að borða

Gleymdu allri útivist, æfingum og hollu matarræði þessa 10 daga. Keyptu þér súkkulaði út í búð, kökur og bland í poka og byrjaðu að gúffa í þig. Um leið og hann fer að nefna það við þig að þú sért farin að borða öðruvísi, segðu honum að það sé vegna hans. Hann sé ekki að gera hluti sem geri það að verkum að þú leitar í súkkulaði. 

Það eru til rannsóknir sem segja að súkkulaði komi í staðinn fyrir kynlíf. Notaðu þær rannsóknarniðurstöður óspart.

Ef kærastinn er byrjaður að vinna yfirvinnu, hangir í tölvunni og reynir að forðast þig eins og heitann eldinn skaltu vera viss um að þú ert á réttri leið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál