Við Kópavogsbraut í Kópavogi er að finna afar stílhreint 105 fm einbýlishús á tveimur hæðum sem reist var árið 2022. Húsið er fallega hannað bæði að innan og utan og skemmtilega skipulagt.
Stofa og eldhús eru samliggjandi í björtu rými á neðri hæð hússins. Í eldhúsinu má sjá stílhreina dökka innréttingu og ljósa eldhúseyju með góðu skápaplássi sem býr til hlýlega stemningu og skemmtilegan kontrast í rýminu.
Yfir eldhúseyjunni hangir Eiffel-ljósið frá Frama sem Krøyer Sætter Lassen hannaði árið 2019 með einfaldleika að leiðarljósi. Þá grípur glæsileg kaffivél einnig augað í eldhúsinu, en það er greinilegt að á heimilinu býr fólk sem kann að meta gott kaffi.
Í stofunni má sjá fleiri fallega og klassíska hönnunarmuni eins og N701 leðursófann sem Jacques Deneef hannaði fyrir Ethnicraft, Y-stólinn sem Hans H. Wegner hannaði árið 1949 og J39-stólinn sem Børge Mogensen hannaði árið 1947.
Húsið státar af þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, en frá stofunni á neðri hæð hússins er útgengt á sólpall og afgirta verönd. Frá hjónaherbergi á efri hæð hússins er svo útgengt á svalir.