Margir eru í sífelldri baráttu við tölurnar á vigtinni og halda að útlitið verði betra eftir því sem talan á vigtinni lækkar. Þó nokkuð margir hafa verið að birta myndir af sér á Instagram með því að nota myllumerkin #gainingweightiscool og #screwthescales til þess að breyta þessari hugsun.
Þó svo að það sé almenn vitneskja, að sterkur líkami sem nærist á góðu mataræði er heilbrigðari og lítur betur út en hungraður líkami, virðist fólk sífellt reyna að hugsa um töluna á vigtinni. Myndirnar hér að neðan sýna vel að tölurnar segja ekki alla söguna.