Sunnudagur, 15. júní 2025

Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 15.6 | 21:13

Kemestrían prýðileg

Barbara Hannigan er, að mati rýnis, einkar frumlegur...

Það eru vægast sagt bundnar miklar vonir við að kanadíski hljómsveitar­stjórinn og söngkonan Barbara Hannigan taki við Sinfóníuhljómsveit Íslands haustið 2026. Þau skipti sem hún hefur unnið með hljómsveitinni hafa skilað frábærum árangri en ekki bara það, efnisskráin á tónleikum Hannigan í Hörpu hingað til hefur verið einkar fjölbreytt og framúrstefnuleg miðað við það sem oft gengur og gerist. Meira

Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 15.6 | 9:01

Fimm metra hátt verk í Hallgrímskirkju

„Við setjum verkið í nýtt samhengi, en það er fimm...

„Við létum okkur dreyma um fallegasta sýningarrými sem væri í boði, sjálfa Hallgrímskirkju, svo að við lögðumst í heimildar- og rannsóknarvinnu, gerðum greinargerð með rökstuðningi og bjuggum til þrívítt módel til að sýna hvernig þetta myndi líta út. Í framhaldinu fórum við til fundar við teymi í kirkjunni og gerðum tilboð um að sýna verkið þar,“ segir Ídris Róbertsdóttir textíllistakona, en einkasýning hennar, annar gluggi til hægri, verður opnuð í dag, sunnudaginn 15. júní, í Hallgrímskirkju. Meira



dhandler