Nettó úti í skógi

Nettó og Skógræktarfélag Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning um verkefnið Opinn …
Nettó og Skógræktarfélag Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning um verkefnið Opinn skógur til næstu tveggja ára. Samsett mynd

Nettó og Skógræktarfélag Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning um verkefnið Opinn skógur til næstu tveggja ára. Samningurinn lýtur að margvíslegum stuðningi við skógrækt og samvinnu vegna uppbyggingar á skógræktarsvæðum. Nettó hefur verið stuðningsaðili að Opnum skógum um árabil enda fellur verkefnið vel að umhverfisstefnu fyrirtækisins.

Sautján skógarsvæði undir merkjum Opins skógar

Núna má finna sautján skógarsvæði víðs vegar um landið undir merkjum Opins skógar. Komið hefur verið upp útivistaraðstöðu, skógarstígum, merkingum og leiðbeiningum á svæðunum.

„Skógarnir ættu að vera auðþekkjanlegir landsmönnum á ferð þeirra um landið en við þá alla blakta bláir Nettófánar,“ segir Helga Dís Jakobsdóttir, markaðsstjóri Nettó. „Skógræktarfélagið er mikilvæg stoð í náttúru- og umhverfisvernd hér á landi og erum við því gríðarlega ánægð með þetta samstarf og að geta haldið áfram að þróa og bæta aðgengi að skógarsvæðum, svo fleiri geti notið þeirra miklu gæða sem felast í íslenskum skógum. Nú þegar vor er í lofti vonum við að sem flestir landsmenn geri sér ferð í Nettó-skóga, en skógardvöl og samvera er frábær heilsubót.“

Undirritun samnings, Helga Dís Jakobsdóttir, markaðsstjóri Nettó, og Jónatan Garðarsson, …
Undirritun samnings, Helga Dís Jakobsdóttir, markaðsstjóri Nettó, og Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands. Ljósmynd/Nettó

Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, segir: „Samstarf okkar við Nettó er liður í því að tryggja áframhaldandi vinnu við að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir um allt Ísland. Við sjáum mikla aukningu í notkun skóga, en undanfarin ár hafa vinsældir íþrótta- og heilsuviðburða í skógum landsins aukist mikið og gildir þá einu hvort um er að ræða keppnir eða viðburði ætlaða almenningi. Slíkt hefur mikið gildi fyrir lýðheilsu og skógarmenningu sem við erum stolt af að halda uppi.“

Yfirlit yfir Opna Skóga um landið.
Yfirlit yfir Opna Skóga um landið.

Markmiðið að bæta aðstöðu og auka aðgengi

Meginmarkmið samstarfsins er að bæta aðstöðu og auka aðgengi að opnum skógræktarsvæðum í alfaraleið og miðla fræðslu um lífríki, náttúru og sögu svo almenningur geti nýtt sér skógana til áningar, útivistar og heilsubótar. Með samningnum er rekstur verkefnisins tryggður næstu tvö árin auk þess sem unnið verður að kynningu á því.

Opinn skógur.
Opinn skógur. Ljósmynd/Nettó
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka