Kjúklinga enchiladas með krydduðum rjómaosti

Kjúklinga enchiladas með krydduðum rjómaosti úr smiðju Thelmu Þorbergsdóttur.
Kjúklinga enchiladas með krydduðum rjómaosti úr smiðju Thelmu Þorbergsdóttur. Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Þennan kjúklingarétt tekur aðeins 30 mínútur að gera og svo er hann svo syndsamlega góður. Hér er á ferðinni kjúklinga enchiladas með krydduðum rjómaosti sem bráðnar í munni og kemur úr smiðju Thelmu Þorbergsdóttir matgæðings með meiru sem hún gerði fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn. Rjómaostur með grillaðri papriku og chili er fullkominn í enchiladas þar sem hann gefur einstakt bragð. Auðvelt er að gera réttinn sterkari með því að bæta við frekari chili fyrir þá sem vilja. Fyllingin getur einnig verið breytileg, með maís eða öðrum baunum að eigin vali. Einstaklega gott með fersku avókadó, guacamole og nachos flögum.

Kjúklinga enchiladas með krydduðum rjómaosti

Fyrir 4

  • 1 stk. heill eldaður kjúklingur
  • 8 stk. tortilla kökur
  • 80 sýrður rjómi frá Gott í matinn
  • 100 rjómaostur með grillaðri papriku og chili
  • 100 g mexíkósk ostablanda
  • 200 g salsa
  • 200 soðin hrísgrjón
  • 2 stk. vorlaukur
  • 1⁄2 tsk. sjávarsalt
  • 1⁄2 tsk. cumin
  • 1⁄2 tsk. chili

Toppur

  • 100 rifinn cheddar ostur frá Gott í matinn
  • 100 salsa sósa
  • kóríander (má sleppa)

Meðlæti

  • Guacamole, nachos flögur og sýrður rjómi

Aðferð:

  1. Skerið kjúklinginn smátt niður og blandið saman við ásamt hrísgrjónum. Hrærið þar til allt hefur náð að blandast saman.
  2. Setjið um 100 g af salsa sósu í botninn á eldföstu móti.
  3. Smyrjið hverja tortillu fyrir sig með kjúklingablöndunni, rúllið þeim upp og leggið í eldfasta formið þannig að sárið snúi niður.
  4. Raðið öllum tortillunum í eldfasta mótið.
  5. Setjið restina af salsa sósunni yfir tortillurnar ásamt rifnum cheddar osti og söxuðum kóríander.
  6. Eldið í 15-20 mínútur eða þar til osturinn hefur náð að bráðna alveg og tortillurnar hafa náð að hitna vel.
  7. Berið fram til dæmis með fersku guacamole, sýrðum róma og nachos flögum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert