Þá er komið að uppskrift fyrir helgarbaksturinn sem er fastur liður hér á matarvefnum á föstudagsmorgnum og kemur að þessu sinni úr smiðju Aþenu Þallar Gunnarsdóttur Hafnfirðings og bakaranema hjá bakaríi Gulla Arnars í Hafnarfirði. Í tilefni þess að páskarnir nálgast óðfluga ætlar Aþena að bjóða lesendum upp á páskalega uppskrift að sítrónuostaköku með „toffeepops“ botni og dulce de lache. Kakan hentar öllum allan ársins hring en sérstaklega um páskana.
Aþena hefur ávallt heillast að matargerð og bakstri enda búin að vera á kafi í hvoru tveggja í langan tíma. „Ég hef verið á námssamning hjá Gulla í rúmt ár. Ég útskrifaðist matreiðslumaður vorið 2022. Ég var jafnframt matreiðslunemi hjá Fiskfélaginu og starfaði þar áfram eftir útskrift til ársins 2023. Síðan ákvað ég skyndilega snemma árið 2023 að skella mér í bakarann þar sem ég hef alltaf haft mikinn áhuga bakstri og þá sérstaklega eftirréttum. Upphaflega stefndi ég reyndar að því að fara í arkitektanám en það breytist. Með fram náminu vildi ég vinna og þá kom upp uppvaskarastaða hjá Fiskfélaginu sem mér hlotnaðist og þar smitaðist ég af veitingahúsabakteríunni,“ segir Aþena glettin á svip.
Keppnisskapið er líka til staðar hjá Aþenu og hún hefur þegar tekið þátt í nokkrum matreiðslukeppnum. „Ég hef ávallt haft mikið keppnisskap og finnst gaman að læra eitthvað nýtt. Þegar ég var nýbyrjuð á matreiðslunemasamningnum var mér bent á kokkalandsliðið og að það væri tilvalið að keppa þar fyrir hönd Íslands. Það finnst mér afar heillandi kostur og hikaði ekki við að kanna málið. Síðan þá hef ég verið aðstoðarmaður kokkalandsliðsins og er mjög stolt af því. Ég hef farið tvisvar með kokkalandsliðinu í keppni erlendri grundu. Árið 2019 keppti ég í minni fyrstu keppni sem var Eftirréttur ársins og hreppti þar þriðja sætið. Í mars árið 2022 tókum við, Sveinn Steinsson, þátt í Nordic Green Chef og unnum þar silfrið. Þegar ég lít til baka þá hefði mér aldrei dottið í hug að geta þetta allt,“ segir Aþena og brosir.
Baksturbakterían hefur blundað í Aþenu frá því að hún man eftir sér. „Frá því að ég man eftir mér hef ég alltaf verið að aðstoða mömmu í eldhúsinu. Um leið og foreldrar mínir treystu mér fyrir bakaraofninum var annaðhvort farið heim að baka beint eftir skóla eða spila fótbolta. en allur frítíminn minn fór í annað hvort bakstur eða fótbolta. Þegar ég var lasin heima þá var bakað.“ Aðspurð segir Aþena að áhugasvið hennar liggi fyrst og fremst í því að gera eftirrétti. Mér finnst mér ávallt gaman að prófa nýjar uppskriftir og aðferðir þegar það kemur að eftirréttum. En öll eldamennska og bakstur finnst mér spennandi,“ segir Aþena og er farin að hlakka til að geta bakað og notið sín í eldhúsinu um páskana.
Hún er búin að ákveða hvaða eftirrétt hún ætar að bjóða upp á í ár og deilir hér með lesendum matarvefs mbl.is uppskriftinni að réttinum góða. „Í ár ætla ég að bjóða upp á sítrónuostaköku með „toffeepops“ botni og dulce de lache. Kakan hentar öllum allan ársins hring en sérstaklega um páskana. Mitt uppáhaldshráefni er sítróna og er ég mikið fyrir góðar ostakökur. Uppskriftin er einföld en vert er að hafa í huga að byrja þarf að gera þessa sítrónuostaköku daginn áður en bera á hana fram,“ segir Aþena.
Mikill kraftur er í Aþenu og finnst henni mikilvægt að þegar hver og einn er að leita sinni hillu haldið ótrauður áfram og láti drauma sína rætast. „Mig langar að segja gerðu það sem þú vilt, láttu ekkert stoppa þig í að prófa þig áfram og að gera nýja hluti. Seinustu mánuði hef ég verið að vinna með að gera það sem mig hefur verið að dreyma um. Ekki láta þig dreyma of lengi, heldur gerðu bara hlutina, framkvæmdu þá, þú munt ekki sjá eftir því,“ segir Aþena að lokum full sjálfstraust og gleði.
Sítrónuostakaka með „toffeepops“ botni og dulce de leche
„Toffeepops“ botn
Aðferð:
Aðferð:
Dulce de leche
Aðferð: