Kaffikokteillinn sem er að gera allt vitlaust

Við erum ekkert að grínast er við segjum ykkur frá nýjasta trendinu á samfélagsmiðlunum. Hér um ræðir espresso martini kokteil, toppaður með parmesan osti - en þetta sáum við ekki fyrir.

Instagram barþjónninn Tyler Zielinski, vill meina að hér sé um afbragðsblöndu að ræða og að við eigum ekki að dæma bókina eftir kápunni. Samsetningin sé ekki eins óvenjuleg og við höldum því í mörgum menningarheimum er til dæmis kaffi og ostur, nokkuð algeng pörun. Eins sjáum við hið þekkta tiramisu með mascarpone og espresso á Ítalíu. svo eitthvað sé nefnt. Tyler segir jafnframt að hér sé ekki besti drykkur í heimi á boðstólnum, heldur drykkur sem á eftir að koma fólki skemmtilega á óvart.

Við mælum með að fylgja Tyler á Instagram, þar sem hann deilir fréttum og fróðleik um kokteila, fallegum myndum af drykkjum og ferðalögum út um allan heim - en þess má geta að Tyler er með yfir 13 þúsund fylgjendur og skrifar m.a. fyrir tímaritið Food & Wine.

 


Espresso martini með parmesan osti - gjörið svo vel.
Espresso martini með parmesan osti - gjörið svo vel. mbl.is/Tyler Zielinski
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert