Sykurlausa ostakakan sem sprengir alla skala

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höfum við alveg dásamlega góða súkkulaði ostaköku sem inniheldur engan sykur. Hún smakkast þó eins og venjuleg ostakaka, áferðin er silkimjúk og sæt á bragðið. Það sem gerir hana svona góða er súkkulaðismjörið frá Good Good en það er gert út stevíu,“ segir Linda Ben um þessa köku sem ansi margir eru að tryllast yfir.

„Til þess að gera þessa ostaköku þá mylur maður kex úr höfrum og blandar saman við smjör. Pressar í smelluform (eða beint á kökudisk með aðeins hringinn af smelluforminu á kökudiskinum) og setur í frysti.

Svo blandar maður saman rjómaosti og súkkulaðismjörinu. Þeytir rjóma og blandar því saman við súkkulaíblönduna. Setur það svo ofan á kexbotninn og setur í frysti.

Síðast setur maður brætt súkkulaðismjör ofan á kökuna og ber hana fram.

Það er því kjörið að gera þessa köku með góðum fyrirvara þar sem hún geymist í frysti. En ef þið eruð á hraðferð þá er nóg að frysta hana í 3-4 klst til að hún taki sig.“

Sykurlaus súkkulaði ostakaka

  • 200 g hafrakex (sykrulaust t.d. hrökkbrauð)
  • 100 g smjör
  • 500 ml rjómi
  • 400 g rjómaostur
  • 350 g súkkulaðismjör frá Good Good (skipt í 250 g og 100 g)

Aðferð

  1. Bræðið smjörið og myljið kexið, blandið því saman. 
  2. Smyrjið 23 cm smelluform og pressið blöndunni í botninn. Setjið í frysti.
  3. Hrærið saman rjómaostinum og súkkulaðismjörinu.
  4. Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju. Hellið yfir kexbotninn og setjið aftur í frysti og geymið í a.m.k. 3-4 klst.
  5. Setjið restina af súkkulaðismjörinu í örbylgju u.þ.b. 15 sek, hrærið því saman og hellið svo yfir kalda kökuna, dreyfið úr með spaða þannig súkkulaðismjör hjúpi kökuna efst.
  6. Gott er að taka kökuna úr frysti 1 klst áður en hún er borðuð.
Ljósmynd/Linda Ben
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert