Heilsusamleg möndlu- og hindberjakaka

Ljósmynd/Linda Ben
Hér höfum við alveg dásamlega góða og ljúffenga köku sem er heilsusamlegri en þær flestar. Hún inniheldur ekkert hvítt hveiti, heldur er notað möndlumjöl í hana og því er hún glúteinlaus.

Konan á bak við kökuna er matarbloggarinn Linda Ben en hún segist elska bragðið af möndlumjöli auk þess sem það geri kökuna næringarríkari.

„Ég geri alltaf möndlumjölið mitt sjálf, og möndlumjólkina reyndar líka, en það er alveg svakalega einfalt. Maður einfaldlega smellir möndlum í blandara og hakkar þær þar til þær eru orðnar að mjöli. Eina sem þarf að passa er að hafa blandarann ekki of lengi í gangi því þá geta þær byrjað að maukast og orðið að möndlusmjöri. Ég er með Nutribullet-blandara og þetta tók mig um það bil 5 til 10 sekúndur að breyta möndlunum mínum í möndlumjöl,“ segir Linda.

„Í staðinn fyrir hvítan sykur er notað blómahunang í þessa köku en einnig gefa hindberin kökunni sætt og gott bragð. Hindberin gera kökuna líka aðeins blautari og meira djúsí. Annars er þessi kaka einföld, inniheldur tiltölulega fá innihaldsefni og kallar ekki á of mikið af óhreinu leirtaui sem mér þykir alltaf kostur. Þessi kaka sómir sér vel á hvaða veisluborði sem er, sem og í bönsinn eða kaffiboðið þar sem gott er að bjóða upp á örlítið hollari valkosti.“

Heilsusamleg möndlu- og hindberjakaka

  • 2 egg
  • 60 ml bragðlaus kókosolía frá Muna, brædd
  • 80 ml blómahunang frá Muna
  • börkur af 1 sítrónu
  • 270 g möndlur, hakkaðar í mjöl
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ¼ tsk. salt
  • 150 g frosin hindber

Hindberjarjómi

  • 250 ml rjómi
  • 50 g frosin hindber
  • 50-100 g flórsykur (fer eftir hversu sætan þið viljið hafa rjómann)

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir- og yfirhita.
  2. Setjið egg, brædda kókosolíu, hunang og börk af sítrónu í skál, hrærið saman.
  3. Setjið möndlur í blandara eða matvinnsluvél og hakkið þær þar til þær eru orðnar að fínu mjöli, sigtið mjölið þannig að engir kekkir eða stórir bitar séu í því og setjið í skál.
  4. Bætið lyftidufti, matarsóda og salti í möndlumjölið og blandið saman. Bætið út í eggjablönduna og hrærið saman.
  5. Bætið frosnu hindberjunum út í og blandið saman.
  6. Smyrjið 20 cm smelluform og setjið deigið í formið, bakið í um það bil 40-45 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn. Kælið kökuna.
  7. Setjið frosin hindber í pott og stillið á vægan hita, bræðið og merjið hindberin í pottinum (passið að vökvinn gufi ekki upp). Hellið hindberjamaukinu í sigti og sigtið fræin frá hindberjasafanum, sigtið safann í litla skál eða glas.
  8. Setjið rjómann og flórsykur í skál, þeytið saman létt, bætið hindberjasafanum út í rjómann og þeytið rjómann alveg. Smyrjið hindberjarjómanum á kalda kökuna.
Ljósmynd/Linda Ben
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka