Nei, hættu nú alveg Berglind!

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Það er svo gott að geta gripið í sætindi í hollari kantinum þegar sætindaþörfin kallar. Hér eru á ferðinni guðdómlega mjúkar döðlur fylltar með hnetusmjöri og stökkri möndlu. Uppskriftin er mögulega ein sú besta sem við höfum smakkað og við hvetjum ykkur svo sannarlega til að prófa!

Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að uppskriftinni.

Hollar nammidöðlur 

30 bitar

  • 30 stk. ferskar döðlur
  • Um 180 g gróft hnetusmjör
  • 30 stk. Til hamingju möndlur í hýði
  • 80 g dökkt súkkulaði
  • Saxaðar Til hamingju pistasíuhnetur
  • Saxaðar Til hamingju möndlur í hýði
  • Til hamingju gróft kókosmjöl

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera rauf í döðlurnar og fjarlægja steininn.
  2. Hrærið hnetusmjörið upp og skiptið á milli daðlanna. Gott er að nota sprautupoka en klippa ágætlega stórt gat á endann.
  3. Stingið næst einni möndlu ofan í hnetusmjörið á hverri döðlu, allt í lagi þó það sjáist í möndluna, bara að hún festist.
  4. Stingið í frysti á meðan annað er undirbúið.
  5. Saxið niður pistasíuhnetur og möndlur og bræðið dökka súkkulaðið.
  6. Takið döðlurnar úr frystinum, rennið súkkulaði yfir þær og stráið næst söxuðum hnetum, möndlum og kókosmjöli yfir þær til skiptis.
  7. Geymið í kæli eða frysti og njótið þegar sætindaþörfin kallar.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert