Húrrandi huggulegur jóla-martíní

Piparmyntu kokteill sem fullkomnar aðventuna.
Piparmyntu kokteill sem fullkomnar aðventuna. mbl.is/Delish

Hér er fullorðinsdrykkur á boðstólum - og það í sannkölluðum jólabúningi með piparmyntubragði.  Það er þó ekki hægt að bera saman venjulegan martini og þennan drykk hér - fyrir utan að þeir innihalda báðir vodka og eru bornir fram í martini-glösum.

Jólalegur piparmyntu-martini (3 glös)

  • 1/2 bolli súkkulaði, bráðið
  • 1/4 bolli muldir brjóstsykursstafir (e. candy cane)
  • 180 ml hvítur súkkulaðilíkjör
  • 118 ml vodka
  • 60 ml piparmyntusnaps
  • 2 msk. rjómi
  • Ísmolar
  • 3 litlir brjóstsykursstafir

Aðferð:

  1. Hellið bræddu súkkulaði á grunnan disk. Setjið brjóstsykursmulninginn á annan disk. Dýfið glasbrúnunum í súkkulaðið og því næst í sælgætismulninginn. Hellið afganginum af súkkulaðinu í botninn á glösunum og veltið þeim rólega í hringi til að hjúpa botninn og neðri helming glasanna. Setjið glösin í kæli á meðan drykkurinn er undirbúinn. 
  2. Blandið saman súkkulaðilíkjörnum, vodkanu, piparmyntu og rjómanum í kokteilhristara. Fyllið upp með ísmolum og hristið. Skiptið drykknum í þrjú glös og skreytið með jólastaf áður en drykkurinn er borinn fram. 

Uppskrift: Delish

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert