Meðlætið sem hentar með flestum mat

Frábært brokkolísalat sem hentar stórvel með kjúkling.
Frábært brokkolísalat sem hentar stórvel með kjúkling. mbl.is/Helga Magga

Brokkolísalaat sem þetta er ómissandi með kjúklingaréttinum eða eitt og sér ef því er að skipta. Rétturinn er í boði Helgu Möggu sem segir uppskriftina vera vegan.

Meðlætið sem hentar með flestum mat

  • 150 g brokkolí
  • 150 g paprika
  • 210 g kjúklingabaunir niðursoðnar (ein krukka)
  • 60 g þurrkuð trönuber

Sósa

  • 50 g tahini
  • sítrónusafi úr hálfri sítrónu (um 30ml)
  • 4-5 msk. heitt vatn
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 10 g fiber sýróp/maple sýróp (2 tsk.)
  • 1 tsk. karrý
  • 5 g ferskt engifer
  • 1/2 tsk. turmerik duft
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Allt skorið smátt niður og blandað saman í skál. Ég tek hýðið af kjúklingabaununum en það er smekksatriði. Líka mjög gott að setja 25 gr blaðlauk og smá kóríander, ég set það með ef ég á það til.
  2. Sósan: Gott að gera hana í blandara, henni er svo hellt yfir salatið og öllu blandað vel saman.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert