Beikonhringir sem gera allt vitlaust

Ofnbakaðir laukhringir með beikoni.
Ofnbakaðir laukhringir með beikoni. Mbl.is/Tiktok_ramin2025

Hér er smáréttur sem þú vilt alls ekki missa af, ef þú elskar lauk og beikon þar að segja. Fullkominn snakkbiti sem þú mátt leyfa þér að njóta hvenær sem er – því þú átt það skilið.

Smárétturinn sem bragð er af

  • Laukur
  • Beikon
  • Púðursykur
  • Paprikukrydd

Aðerð:

  1. Skerið lauk í þykkar sneiðar og vefjið beikonsneið utan um.
  2. Leggið á ofngrind og kryddið með púðursykri og paprikukryddi.
  3. Setjið inn í 180°C ofn í 10 mínútur og berið fram með ídýfu eða sósu að eigin vali.
Mbl.is/Tiktok_ramin2025
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert