Haustrétturinn sem þú verður að prófa

Chili con Carne er einn af þessum haustréttum sem nauðsynlegt er að gera að minnsta kosti einu sinni. Þessi uppskrift er úr smiðju Theodóru J. Sigurðardóttur Blöndal og er alveg upp á tíu!

Chili con Carne

Fyrir sex

  • 2 msk. olía
  • 2 msk. smjör
  • 2 stk. gulir laukar
  • 4 stk. hvítlauksrif
  • 1 msk. kúmen, heilt
  • 1⁄2 stk. gul paprika
  • 1⁄2 stk. rauð paprika
  • 1⁄2 stk. græn paprika
  • 500 g nautahakk
  • Saltflögur, eftir smekk
  • Grófur svartur pipar, eftir smekk
  • Chiliflögur, eftir smekk
  • 1 msk. Worchestershiresósa
  • 2 stk. grænmetiskraftur
  • 1 dós niðursoðnir saxaðir tómatar
  • 1 dós bakaðar baunir
  • 1 dós nýrnabaunir
  • 1 msk. hunang
  • 1 box rjómaostur með svörtum pipar
  • 100 g suðusúkkulaði

Aðferð:

  1. Steinselja til að skreyta með
  2. Hitið olíu og smjör á pönnu eða notið djúpan pott.
  3. Skerið laukinn og hvítlaukinn smátt og bætið við ásamt kúmeni.
  4. Látið laukinn verða glæran og finnið dásamlegan ilminn fylla eldhúsið.
  5. Skerið paprikurnar i teninga og bætið við.
  6. Látið svitna í pottinum.
  7. Setjið nautahakkið saman við og látið það brúnast með grænmetinu.
  8. Kryddið með salti, pipar, chiliflögum og worchestershiresósu.
  9. Farið varlega með chiliflögurnar. Það þarf oftast ekki mikið af þeim.
  10. Opnið dósirnar og setjið innihaldið í pottinn.
  11. Hrærið og látið suðuna koma upp og lækkið þá hitann eitthvað.
  12. Látið malla hægt og rólega í klukkutíma ef hægt er.
  13. Setjið hunangið, rjómaostinn og súkkulaðið út í og látið það bráðna með.
  14. Skreytið með steinselju þegar borið er fram.

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka