Gratínerað gnocchi með hakki og ostasósu

Ljúffengt gratínerað gnocchi með hakki og ostasósu.
Ljúffengt gratínerað gnocchi með hakki og ostasósu. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Þessi guðdómlegi réttur á vel við í miðri viku fyrir alla fjölskylduna meðan vetur konungur lætur í sér heyra. Huggulegur heimilismatur eins og hann gerist bestur. Það má auðvitað nota hvaða pasta sem er í réttinn en litlir ferskir dúnmjúkir gnocchi koddar taka þetta samt upp á annað stig. Heiðurinn af þessari uppskrift á Helena Gunnarsdóttir uppskriftahöfundur en uppskriftina gerði hún fyrir uppskriftasíðuna Gott í matinn. 

Gratínerað gnocchi með hakki og ostasósu

  • 500 g nautahakk
  • 1 stk. laukur
  • 2 stk. hvítlauksrif
  • 2 msk. tómatpaste
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 1 dl vatn
  • 1 stk. nautateningur eða 1 tsk. nautakraftur
  • 1 tsk. oreganó
  • Salt og pipar eftir smekk
  • 500 ferskt gnocchi

Ostasósa

  • 200 g kotasæla
  • 200 g rjómaostur með graslauk og lauk frá MS
  • 1 pk. 4 osta blanda frá Gott í matinn
  • Smá pipar 

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 220°C með blæstri.
  2. Steikið hakkið á pönnu þar til brúnað. Bætið smátt söxuðum lauk á pönnuna ásamt hvítlauk. Kryddið með salti og pipar og steikið aðeins áfram.
  3. Bætið tómatpaste á pönnuna ásamt hökkuðum tómötum. Skolið dósina að innan með 1 dl af vatni og bætið á pönnuna.
  4. Kryddið með nautakrafti, oreganó og saltið og piprið eftir smekk.
  5. Leyfið að malla í 15 mínútur við vægan/meðalhita þannig að sósan þykkni aðeins.
  6. Hrærið saman kotasælu, rjómaosti og hálfum poka af 4 osta blöndu.
  7. Kryddið með smá pipar og setjið til hliðar.
  8. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakka og bætið því svo út á pönnuna og blandið saman við hakksósuna.
  9. Setjið vænar skeiðar af ostasósunni svo ofan á hakkið og pastað og toppið loks með restinni af rifna ostinum.
  10. Bakið í ofni í 5-10 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.
  11. Það getur verið gott að hita grillið í ofninum síðustu mínúturnar til að fá extra stökkan ost.
  12. Berið fram með fersku salati ef vill og nýbökuðu brauði. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert