Chili con Carne eins og þú hefur aldrei smakkað það

Hér erum við með geggjaða uppskrift að Chili con carne sem er ein frægasta kássa veraldar. Nú móðgast eflaust sumir og fullyrða að chili con carne sé pottréttur  og það má vel vera en kássur eru afskaplega vanmetin fyrirbæri og það allra besta sem hægt er að gæða sér á á köldum vetrardegi.

Chili con Carne

Fyrir sex manns – einfaldur réttur þótt innihaldslýsingin sé löng.

Með chiliréttinum er afbragðsgott að bera fram hrísgrjón, maísbaunir, salat og kalda sósu.

  • 2 msk. olía
  • 2 msk. smjör
  • 2 stk. gulir laukar
  • 4 stk. hvítlauksrif
  • 1 msk. kúmen, heilt
  • 1⁄2 stk. gul paprika
  • 1⁄2 stk. rauð paprika
  • 1⁄2 stk. græn paprika
  • 500 g nautahakk
  • saltflögur, eftir smekk
  • grófur svartur pipar, eftir smekk
  • chiliflögur, eftir smekk
  • 1 msk. worchestershiresósa
  • 2 stk. grænmetiskraftur
  • 1 dós niðursoðnir saxaðir tómatar
  • 1 dós bakaðar baunir
  • 1 dós nýrnabaunir
  • 1 msk. hunang
  • 1 box rjómaostur með svörtum pipar
  • 100 g suðusúkkulaði
  • steinselja til að skreyta með

Aðferð:

  1. Hitið olíu og smjör á pönnu eða notið djúpan pott.
  2. Skerið lauk og hvítlauk smátt og bætið við ásamt kúmeni.
  3. Látið laukinn verða glæran og finnið dásamlegan ilminn fylla eldhúsið.
  4. Skerið paprikurnar i teninga og bætið við.
  5. Látið svitna í pottinum.
  6. Setjið nautahakkið saman við og látið það brúnast með grænmetinu.
  7. Kryddið með salti, pipar, chiliflögum og worchestershiresósu.
  8. Farið varlega með chiliflögurnar. Það þarf sjaldnast mikið af þeim.
  9. Opnið dósirnar og setjið innihaldið í pottinn.
  10. Hrærið og látið suðuna koma upp og lækkið þá hitann eitthvað.
  11. Látið malla hægt og rólega í klukkutíma ef hægt er.
  12. Setjið hunang, rjómaost og súkkulaði út í og látið það bráðna með.
  13. Skreytið með steinselju þegar borið er fram.

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka