Marineraðar kótilettur með mögnuðu meðlæti

mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Það er hinn eini sanni Ragnar Freyr Ingvarsson eða Læknirinn í eldhúsinu sem á heiðurinn að þessari uppskrift. Ragnar er sérlega flinkur grillari og því ekki annað hægt en að prófa þessa dásemd en Ragnar leggur ætíð mikið upp úr meðlætinu sem er íslenskt grænmeti að þessu sinni.

„Loksins erum við Reykvíkingar farnir að sjá einhver teikn um að sumarið sé á næsta leiti. Sólin hefur aðeins gægst út í gegnum skýjahnoðrana og regninu hefur eitthvað slotað. Það er fátt sem gleður meira en von um góðviðri þannig að hægt sé að kynda undir grillinu með sólarglætu í hjarta,“ segir Ragnar og bætir því við að þessi uppskrift tylli því besta úr íslenskri náttúru upp á ljúfan stall þar sem lambið og grænmetið fái sérstaklega að njóta sín.

mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Marineraðar lambakótilettur

  • 2 hryggir skornir í 1,5 cm þunnar sneiðar
  • 4 msk jómfrúarolía
  • safi úr einu lime
  • börkur af einu lime
  • 3 hvítlauksrif
  • ½ rauður chilipipar
  • 1 tsk hlynsíróp
  • salt og pipar
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Vellaukað kartöflusalat

  • 1 kg smælki með hýðinu
  • 1 rauðlaukur
  • búnt af vorlauk
  • 4 skalottulaukar
  • 4 msk smátt skorinn graslaukur
  • 4 msk smátt skorin steinselja
  • 3 hvítlauksrif
  • 3 msk majónes
  • 2 msk grísk jógúrt
  • 2 tsk hlynsíróp
  • 2 tsk hvítvínsedik
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Mangósalsa

  • 1 mangó
  • 4 kjarnhreinsaðir tómatar
  • 1 rauður chilipipar
  • 2 msk hökkuð fersk mynta
  • 4 msk jómfrúarolía
  • 2 tsk hlynsíróp
  • salt og pipar
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Fylltar papríkur

  • 5 rauðar íslenskar papríkur
  • 400 g rjómaostur til matargerðar
  • einn castello-ostur með chilibragði
  • 4 hvítlauksrif
  • 1 msk hökkuð fersk steinselja
  • 1 msk hökkuð fersk basil
  • salt og pipar
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Agúrkusalat frá Hveravöllum

  • 1 kjarnhreinsuð agúrka
  • 1 tsk sykur
  • 2 msk majónes
  • 1 tsk hökkuð fersk steinselja
  • safi úr hálfu lime
  • salt og pipar
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert