Pítsaveisla á bakkanum – bakað á staðnum

Sigþór með pítsu klára við veiðistaðinn Villa. Það er ekki …
Sigþór með pítsu klára við veiðistaðinn Villa. Það er ekki amalegt að fá heita máltíð við bakkann sérstaklega þegar kalt er í veðri. Ljósmynd/Sigþór Steinn

Þú ert skítkaldur úti í fjögurra gráðu heitu vatni í roki og lofthiti er ein gráða. Þú ert löngu hættur að finna fyrir tánum á þér. Varirnar eru bláar af kulda og fingurnir stirðir og hlíða ekki öllu sem þeim er ætlað að gera. Skyndilega ber vindurinn með sér ilmandi lykt af pítsu. Þú ert staddur í sjóbirtingsánni Eldvatni í Meðallandi. Langt frá öllum pítsastöðum. Veiðifélaginn Sigþór Steinn Ólafsson kallar svo hátt og skírt undan vindi. „Það er pítsa. Hún er klár.“ Þú átt í erfiðleikum með að komast í land því allir liðir eru stirðir í kuldanum. Á bakkanum stendur Sigþór með stóran stálspaða og á honum er fullkomin pítsa. „Gjörðu svo vel. Vildirðu ekki geitaost á þína?“

Degið flatt og ofninn orðinn heitur. Vænkaðist nú heldur hagur …
Degið flatt og ofninn orðinn heitur. Vænkaðist nú heldur hagur þeirra félaga þegar geitaostur, hunang og hráskinka barst úr borginni. Ljósmynd/Bjarni Freyr

Þetta upplifði Bjarni Freyr Rúnarsson veiðifélagi Sigþórs í norðanbálinu við Eldvatn síðustu daga. „Guð minn góður. Hvað þetta var ljúft. Ég var annar maður á nokkrum bitum. Þetta kallar maður metnað,“ sagði Bjarni Freyr við Sigþór eftir að hafa sporðrennt tveimur sneiðum.

Pítsan komin í ofninn. Þetta er ekki bara metnaður. Við …
Pítsan komin í ofninn. Þetta er ekki bara metnaður. Við það að baka sjálfur á bakkanum sparaðist tími yfir hádaginn þegar hlýjast var og mestar líkur á töku. Ljósmynd/Sigþór Steinn

Sigþór er búinn að vera við sjóbirtingsveiðar síðustu daga í Eldvatninu. Þegar hann var að pakka fyrir túrinn og hafði skoðað spána ákvað hann að skella pítsaofninum gasdrifna í skottið á jeppanum. Ofninn er fyrirferðamikill en þegar komið var austur í Eldvatn var ofninum komið fyrir við veiðistaðinn Villa. Hann hefur staðið þar síðustu daga og yljað mönnum og konum bæði á sál og líkama. Veiðistaðurinn Villi hefur verið fjölsóttur af veiðifélögum eftir að spurðist út hvað væri í gangi og sumir höfðu fundið keim af pítsalykt við ána. Menn ýta þó slíkum hugrenningum fljót frá sér þegar þeir er staddir fjarri þéttbýli.

Kristín Ingibjörg með 82 sentímetra birting sem hún tók á …
Kristín Ingibjörg með 82 sentímetra birting sem hún tók á Mangatanga. Veiðin var fremur róleg í hollinu en alls var tólf fiskum landað á tveimur dögum. Ljósmynd/Sigþór Steinn

„Við köllum þetta Villapítsu,“ hlær Sigþór. Hann segist hafa verið duglegur með ofninn þó að vísu hafi sunnudagurinn með sínum tuttugu metra á sekúndu roki ekki boðið upp á viðráðanlegar aðstæður.

Það var gefið í við ofninn í gær þegar frekari aðföng bárust austur með nýjum veiðimönnum og þar var geitaostur efst á lista og einnig hráskinka.

„Það er ekki alltaf mokveiði í boði og þá er gott að eiga góða stund með vinum og félögum og segja sögur,“ útskýrir Sigþór varðandi hugmyndina að taka ofninn með í túrinn.

Gæðastund hjá Villapítsu.
Gæðastund hjá Villapítsu. Ljósmynd/Sigþór Steinn

Kristín, kærasta Sigþórs er með í för. Hún landaði flottum birtingi á Mangatanga og mældist hann 82 sentímetrar. Næst lá leiðin í Villa og þar útbjó Sigþór pítsu. Svo að öllum staðreyndum sé til haga haldið þá var hugsunin að nýta sem best heitasta tíma dagsins og þurfa ekki að fara í hús til að elda og stytta gluggann sem gaf mestan möguleika á fiski. Þar hjálpaði pítsaofninn.

Sigþór heldur úti Hylnum sem er vinsælt hlaðvarp um veiði, er þaulvanur veiðimaður og hefur stundað veiðileiðsögn um árabil. Hann hefur þarna hækkað rána svo um munar þegar kemur að því að næra sig við bakkann. Næst þegar þú sest niður með köldu samlokuna þína og ískalt appelsín á köldum vordegi þá er líklegt að þér verði hugsað til Sigþórs og pítsaofnsins.

Sumir voru enn að borða á meðan að aðrir veiðimenn …
Sumir voru enn að borða á meðan að aðrir veiðimenn voru komnir út í. Í baksýn má sjá birting háfaðan í Villanum. Ljósmynd/Sigþór Steinn

Eldvatnið er nú komið í tæplega sjötíu sjóbirtinga frá opnun. Það er ágætis byrjun miðað við aðstæður. Gjöfulasti staðurinn er Eyjarof með 22 bókaða fiska. Villi er kominn inn á listann í fimmta sæti með sex bókaða og þar af voru fjórir í gær. Geitaosturinn spurðist fljótt út og veiðimenn kepptust við að kíkja í Villa og Villapítsu.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert