„Ég er fyrst og fremst mjög ánægð með það að við erum komin með tvo menn örugglega inn," sagði Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, eftir að fyrstu tölur lágu fyrir. Samkvæmt þeim ná Vinstri grænir tveimur mönnum inn í borgarstjórn. Svandís sagði að Vinstri grænir hefðu greinilega verið að bæta við sig fylgi alla kosningabaráttuna. „Það staðfestir það að okkar málflutningur á hljómgrunn meðal borgarbúa. Mér finnst frábært að finna það."
Aðspurð sagðist Svandís vera vongóð um að ná inn þriðja manninnum þegar líða tekur á kosningakvöldið. „Við eigum töluvert inni meðal þeirra sem er erlendis," sagði hún meðal annars og vísaði til utankjörfundaratkvæðanna. „Ég hef haft fregnir af því að við séum með mikinn stuðning þar."