Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur náð að slökkva sinueldinn á Arnarnesi frá því í kvöld.
Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Slökkvistarf gekk vel og urðu ekki neinar skemmdir á verðmætum.