Framboðslistar Frjálslynda flokksins í smíðum

Arnar G. Hjaltalín, formaður stéttarfélagsins Drífanda í Vestmannaeyjum, mun leiða framboðslista Frjálslyndra og óháðra við sveitarstjórnarkosningarnar í Eyjum í vor. Verið er að ganga frá framboðslista í Vestmannaeyjum og verður tilkynnt um hann á næstu dögum.

Fram kemur á heimasíðu flokksins, að undirbúningur sé nú í fullum gangi að framboðum víða um land. Bæjarmálafélag Frjálslyndra og óháðra var stofnað á Akranesi um síðustu helgi og er vinna við að raða saman framboðslista í fullum gangi. Stefnt er að því að kynna efstu sæti þar ekki síðar en á mánudag.

Í Grindavík er einnig verið að ljúka við lista sem kynntur verður á næstu dögum. Undirbúningur hefur einnig staðið yfir í Reykjanesbæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert