Handtekinn eftir þjófnað á bar

Rólegt var hjá lögreglunni í gærkvöldi og nótt.
Rólegt var hjá lögreglunni í gærkvöldi og nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn var handtekinn eftir að lögreglu barst tilkynning um þjófnað á bar í miðborginni. Var viðkomandi látinn laus að lokinni skýrslutöku.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir að gærkvöldið og nóttin hafi verið frekar róleg. Eitthvað hafi verið um aðstoðarbeiðnir vegna veikinda og fólks í annarlegu ástandi.

Í miðborginni var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi sem var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Í Vesturbænum var brotist inn í hús. Var þjófurinn farinn þegar lögreglu bar að garði.

Í Grafarvoginum var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi sem gekk berserksgang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert