„Heimskt fólk alls staðar“

Nico Williams fagnaði marki sínu með því að benda á …
Nico Williams fagnaði marki sínu með því að benda á húðlit sinn eftir að hafa orðið fyrir kynþáttaníði í Madríd. AFP/Oscar del Pozo

Nico Williams, hörundsdökkur leikmaður Athletic Bilbao á Spáni, kveðst hafa mátt sæta kynþáttaníði af hendi stuðningsmanna Atlético Madríd þegar liðin mættust í 1. deildinni í knattspyrnu um helgina.

Atlético Madríd vann leikinn 3:1 en Williams skoraði mark Bilbao er hann jafnaði metin í 1:1.

„Ég fór að taka hornspyrnu og heyrði apahljóð. Það er heimskt fólk alls staðar en ekkert gerist. Við verðum að halda áfram að vinna í þessu.

Ég vona að þetta breytist smátt og smátt því þegar allt kemur til alls erum við að berjast innra með okkur og að utan við þetta.

Það er ekki eðlilegt að maður sæti enn svívirðingum vegna húðlitar,“ sagði Williams í samtali við DAZN eftir leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert