Gleymir seint deginum sem skriðurnar féllu

Framhús var reist á Seyðisfirði árið 1907 en eyðilagðist í …
Framhús var reist á Seyðisfirði árið 1907 en eyðilagðist í aurskriðum í desember 2020. Dagný Erla og þáverandi eiginmaður hennar festu kaup á húsinu árið 2013 og höfðu verið að gera það upp. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dagný Erla Ómarsdóttir, íbúi á Seyðisfirði, segir 18. desember 2020 seint líða sér úr minni. Hún var nýkomin heim til foreldra sinna þegar bróðir hennar sagði við hana: „Framhús er farið.“

„Ég á mjög auðvelt með að detta inn í þennan dag eins og hann hafi gerst í gær, en á sama tíma líður mér eins og það sé óralangt síðan. Þetta er skrítin tilfinning stundum,“ segir Dagný.

Á þessum tíma var Dagný að vinna í grunnskólanum á Seyðisfirði. Hún og barnsfaðir hennar voru skilin að borði og sæng, hann átti heima í húsinu þeirra, Framhúsi, en hún leigði íbúð annars staðar í bænum.

Dagný er viðmælandi í nýjasta þætti af Hringferðinni. Hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan. 

 

Stóð með bakið í fjöllin

„Þennan dag voru einmitt litlu jólin í skólanum og gekk mikið á eins og er á litlu jólunum. Það var svo vont veður, ég man að við vorum inni í gamla skóla, vanalega erum við í Herðubreið, félagsheimilinu,“ segir Dagný. Litlu jólin voru búin um klukkan tvö eftir hádegi og þá fer Dagný heim með dóttur sinni.

Á leiðinni heim hlupu þær einn hring í kringum íþróttavöllinn í grenjandi rigningu. Svo fer Dagný í að skutla dóti heim til vinkonu sinnar og svo annarri vinkonu sinni, en sú hafði þurft að rýma heimili sitt vegna hættu á skriðuföllum.

„Ég fer svo bara heim til mömmu og pabba. Ég man að Helgi bróðir hringdi í mig og ég er bara eitthvað svona að kjafta í símann. Ég sé svo Gunnar mág minn sem stendur fyrir utan hjá mömmu og pabba. Ég er einhvern veginn með bakið í fjöllin,“ segir Dagný. Mágur hennar virtist eitthvað stressaður og svo kemur bróðir hennar aðvífandi og segir þessi orð: „Framhús er farið.“

Dagný Erla Ómarsdóttir tók á móti blaðamönnum á bæjarskrifstofunum á …
Dagný Erla Ómarsdóttir tók á móti blaðamönnum á bæjarskrifstofunum á Seyðisfirði. mbl.is/Brynjólfur Löve

Sá ekki skriðuna falla

Framhús höfðu Dagný og þáverandi eiginmaður hennar keypt árið 2013 og voru í óðaönn að gera það upp, enda yfir 100 ára gamalt hús. Það er eitt þeirra húsa sem gjöreyðilögðust í aurskriðunum, og þar sem áður stóð Framhús er lítið að sjá þegar snjór er yfir öllu.

Dagný rétt missti af því að sjá skriðuna falla en það fyrsta sem kom upp í huga hennar var hvort faðir dætra hennar hefði verið heima. Pabbi hennar gat þó strax sagt henni að enginn hefði verið heima í Framhúsi þegar skriðan féll.

Í kjölfar skriðufallsins fór Dagný með fjölskyldunni niður á Lónsleiru þar sem fólk hafði staðið og fylgst með skriðunni falla. „Ég man að ég fékk svona móment, ég var þarna. Ég var leið, ég faðmaði fólkið, svo hugsaði ég bara: Ég þarf að fara heim og sækja börnin. Ég fór bara og sótti stelpuna okkar í leikskólann,“ segir Dagný.

Hún segir dagana á eftir hafa verið erfiða því hættan vofði enn yfir. „Það var svo dimmt líka. Þannig að maður vissi ekki alveg, maður sá ekki neitt. Það er svo sérstakt.“ Hún segir fólk oft tala um hávaðann sem það heyrði þegar skriðurnar féllu en myrkrið er það sem situr eftir hjá henni.

Dagný segir jólin hafa verið mjög skrítin en þau gátu þó farið heim til foreldra hennar fyrir aðfangadag. „Við reyndum bara að gera gott úr þessu,“ segir Dagný.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert