Ráðuneytið sendi listann í desember

Palestínumenn á flótta á Gasa.
Palestínumenn á flótta á Gasa. AFP

Utanríkisráðuneytið sendi þann 20. desember sendiráði Egyptalands í Ósló lista með nöfnum þeirra sem þá höfðu fengið dvalarleyfi á Íslandi og voru stödd á Gasaströndinni. Var það liður í undirbúningi mögulegra frekari aðgerða íslenskra stjórnvalda.

Ísraelskum stjórnvöldum var sendur sami listi 28. desember 2023 til að óska frekari upplýsinga um aðkomu þeirra að ákvörðunartöku varðandi ferðir fólks frá Gasaströndinni.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Benediktsson, þáverandi utanríkisráðherra, við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingmanns Pírata, um nafnalista dvalarleyfishafa á Gasa.

Fyrirspurnin hljóðaði svo:

„Hvaða dag voru listar með nöfnum handhafa íslenskra dvalarleyfa sem staddir eru á Gaza-ströndinni í Palestínu sendir erlendum stjórnvöldum sem liður í undirbúningi að för þeirra til Íslands? Svar óskast sundurliðað eftir því hvaða stjórnvöldum listi var sendur og hvenær.“

Í svarinu kemur enn fremur fram, að uppfærður listi með nöfnum þeirra 106 sem fengið höfðu dvalarleyfi fyrir 1. febrúar 2024 hafi verið sendur til egypskra stjórnvalda 5. febrúar sama árs, til ísraelskra stjórnvalda 8. og 10. febrúar sama árs og til skrifstofu Sameinuðu þjóðanna sem samræmir aðgengi að hernumdum svæðum Palestínu (e. Access Coordination Unit) 10. febrúar sama árs.

Þá segir að listi með nákvæmari upplýsingum um þá 97 dvalarleyfishafa sem þá voru enn staddir á Gasa hafi verið sendur öllum þessum aðilum 16. febrúar 2024.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert