Fjölda starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu fjölgaði um 8% í nóvember miðað við sama tímabil árið áður. Á tólf mánaða tímabili frá desember 2022 til nóvember 2023 var 13% aukning.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Frá desember 2022 til nóvember 2023 störfuðu að jafnaði um 31.976 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 28.296 fyrir sama tímabil ári fyrr.
Ef skoðaður er fjöldi skiptifarþega frá janúar 2023 til desember 2023 var 41% aukning ef borið er saman sama tímabil árið áður. Brottfarir af Keflavíkurflugvelli jukust allverulega ef miðað er við sama tímabil en jukust þær um 23% á milli ára
Gistinætur á hótelum í nóvember 2023 voru 360.774 samanborið við 353.524 í nóvember 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 289.077 í nóvember, eða 2% fleiri en á sama tíma árið áður.
Í desember fóru 172.990 farþegar frá Keflavíkurflugvelli samanborið við 156.976 í desember 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 137.088 samanborið við 114.788 í desember 2022.
„Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA,“ kemur fram á veg Hagstofu.