Burnley - Newcastle sýndur á mbl.is

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley þurfa á sigri …
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley þurfa á sigri að halda í dag. AFP/Darren Staples

Leikur Burnley og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu verður sýndur beint hér á mbl.is en hann hefst á Turf Moor klukkan 14.

Burnley er í harðri fallbaráttu og þarf á sigri að halda í dag og sama er að segja um Newcastle sem er í miklum slag um Evrópusæti.

Burnley er með 24 stig í 19. og næstneðsta sæti en er þó aðeins þremur stigum frá því að komast úr fallsæti.

Newcastle er í sjöunda sæti með 53 stig, einu stigi á eftir Manchester United.

Útsendingin hefst klukkan 13.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 14.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Burnley og Newcastle í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert