Katla skelfur enn

Skjálfti yfir þremur að stærð varð í Mýrdalsjökli í kvöld.
Skjálfti yfir þremur að stærð varð í Mýrdalsjökli í kvöld. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Jarðskjálfti 3,1 að stærð varð í Mýrdalsjökli rétt fyrir klukkan 23 í kvöld. Er skjálftinn með þeim stærri sem orðið hafa í jöklinum um helgina, en fyrir helgi hófst skjálftahrina á svæðinu. 

Undir Mýrdalsjökli er eldstöðin Katla, sem er ein stærsta og virkasta megineldstöð landsins.

Hrinan hófst aðfaranótt föstudags og var stærsti skjálftinn 4,4 að stærð. Um helgina hægðist á virkni á svæðinu. 

Þegar þetta er skrifað hafa alls 25 skjálftar mælst við Mýrdalsjökul síðustu tvo sólarhringa. Þar af voru 17 undir einum að stærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka