Gagnrýna ákvörðun innviðaráðherra

Oddvitarnir hyggjast leggja ályktun til samþykktar í sveitarstjórnum landsins í …
Oddvitarnir hyggjast leggja ályktun til samþykktar í sveitarstjórnum landsins í vikunni og skora á borgarstjórn og ráðherra að fresta ákvörðuninni þar til framtíðarlausn um innanlandsflug er tryggð. mbl.is/Árni Sæberg

Fjórtán oddvitar Sjálfstæðisflokksins um allt land gagnrýna þá ákvörðun innviðaráðherra að halda áfram fyrirhugaðri uppbyggingu í Nýja Skerjafirði þrátt fyrir að niðurstöður starfshóps gefi til kynna að byggð muni þrengja að og rýra notagildi Reykjavíkurflugvallar.

Oddvitarnir hyggjast leggja ályktun til samþykktar í sveitarstjórnum landsins í vikunni og skora á borgarstjórn og ráðherra að fresta ákvörðuninni þar til framtíðarlausn um innanlandsflug er tryggð.

Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, segir í raun óþolandi að enn sé verið að þrengja að Reykjavíkurflugvelli og setja þessi mál í algjört uppnám enn á ný.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert