Ferðafólk beðið um að sýna aðgát

Vatnavextir eru í ám á Suðurlandi og Vesturlandi.
Vatnavextir eru í ám á Suðurlandi og Vesturlandi. Facebook-síða lögreglunnar á Suðurlandi

Há vatnsstaða er í ám og lækjum vegna vætusamrar tíðar á vestanverðu landinu. Spáð er rigningu einkum vestan til á landinu í dag og á sunnanverðu hálendinu svo gera má ráð fyrir áframhaldandi hárri vatnshæð. Ferðafólk er hvatt til sýna sérstaka aðgát við vatnsföll og vöð.

Þessar aðstæður auka líkur á grjóthruni og skriðum í bröttum hlíðum að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert