Garðabær lækkar skatt á atvinnuhúsnæði

Garðabær hefur lækkað álagningarprósentu á atvinnu- og íbúðarhúsnæði.
Garðabær hefur lækkað álagningarprósentu á atvinnu- og íbúðarhúsnæði. mbl.is/ Sigurður Bogi Sævarsson

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum í gær breytingartillögu við fjárhagsáætlun næsta árs, þess efnis að álagningarprósenta á atvinnu- og íbúðarhúsnæði verði lækkuð. Mun álagningarprósentan á atvinnuhúsnæði lækka úr 1,65% af fasteignamati í 1,63%.

Verður Garðabær þar með fimmta stóra sveitarfélagið sem lækkar álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði fyrir næsta ár. Greint er frá þessu á vef Félags atvinnurekenda, sem segir Reykjavík vera eftir þetta eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem áfram ætli að halda skatti á atvinnuhúsnæði í lögleyfðu hámarki, „þrátt fyrir gífurlegar hækkanir fasteignagjalda“. 

Bendir Félag atvinnurekenda á að samkvæmt samþykkt borgarstjórnarfundar fyrr í vikunni þá verði ekki byrjað að lækka fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði í borginni fyrr en árið 2021. Skatthlutfallið verði því óbreytt í Reykjavík næstu tvö ár, en á eftir það að lækka í 1,63% árið 2021 og 1,6% árið 2022.

„Við fögnum því að málflutningur Félags atvinnurekenda nær í gegn hjá æ fleiri sveitarfélögum, sem sjá að það er einfaldlega ekki sanngjarnt að leggja stóraukna skatta á fyrirtækin vegna hækkana á fasteignamati  sem oftast eiga sér enga samsvörun í afkomu eða greiðslugetu fyrirtækjanna,“ er haft eftir Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda í fréttinni. Mun meiri vonbrigðin séu hins vegar með afstöðu Reykjavíkurborgar og hljóti mörg fyrirtæki í borginni að vera farin að horfa til þess að skattaumhverfið í ýmsum nágrannasveitarfélögum sé „orðið mun hagstæðara“.

Kort/Félag atvinnurekenda
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert