Skoða hvort eitthvað hafi breyst

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir að skoðað verði hvort eitthvað hafi breyst síðan í stjórnarmyndunarviðræðum fyrir tæplega ári síðan og hægt sé að mynda starfsstjórn eftir að ríkisstjórnin sprakk í nótt þegar Björt framtíð sagði sig úr ríkisstjórnarsamstarfi.

Hann segir Viðreisn þó ekki telja það líklegt og að viss vonbrigði hafi verið að fara í vegferð sem ríkisstjórnarsamstarfið var til að ná árangri, en komast ekki lengra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert