Garðabær kaupir land Vífilsstaða

Vífilsstaðaspítali og aðrar húseignir ríkisins á Vífilsstöðum eru undanskildar kaupunum.
Vífilsstaðaspítali og aðrar húseignir ríkisins á Vífilsstöðum eru undanskildar kaupunum. Morgunblaðið/Eggert

Garðabær og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa náð samkomulagi um að Garðabær kaupi jörðina Vífilsstaði af ríkinu. Um er að ræða alls 202,4 hektara svæði, sem er svæðið í kringum Vífilsstaðaspítala, svæði austan Vífilsstaða (Skyggnir), núverandi golfvallarsvæði GKG, friðland í Vífilsstaðahrauni (Svínahrauni) og Rjúpnahæð á móts við Kjóavelli.

Í fréttatilkynningu frá Garðabæ kemur fram að kaupverðið nemi 558,6 milljónum króna og er verðið sagt byggja á mati á grunnverði landsins sem kaupandi og seljandi stóðu sameiginlega að.

Við undirritun kaupsamnings koma til greiðslu 99,3 mkr.  Eftirstöðvar koma síðan til greiðslu í tengslum við uppbyggingu svæðisins, en þó eigi síðar en innan átta ára. Til viðbótar grunnverði á seljandi rétt á hlutdeild í ábata af sölu byggingarréttar á svæðinu.

Undanskildar kaupunum eru allar húseignir ríkisins á Vífilsstöðum, en gerðir verða lóðarsamningar um eignirnar.

„Með kaupum á landinu tryggir Garðabær sér forræði yfir eignarhaldi landsins sem mun auðvelda bæjarfélaginu að vinna að gerð skipulagsáætlana fyrir svæðið,“ að því er segir í tilkynningunni.

„Í tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir að svæði Vetrarmýrar, Hnoðraholts og Vífilsstaða verði eitt skólasvæði með 1200-1500 íbúðum þar sem fléttast saman ólíkir hagsmunir með uppbyggingu íbúðarbyggðar, skóla- og íþróttasvæði og atvinnu- og þjónustusvæði.“

Garðabær hefur í framhaldi af undirritun samningsins hug á að efna til samkeppni um rammaskipulag svæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert