Fékk oft tækifæri til að mótmæla sölunni

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir að það sé merkilegt að Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, skuli ekki muna að hann hafi margoft samþykkt heimild í fjárlögum til að selja landið við Vífilsstaði. Hann hafi oft fengið tækifæri til að mótmæla slíkri sölu, m.a. sem forsætisráðherra. 

Þetta kemur fram í færslu sem Benedikt birti á Facebook nú í kvöld.

Frétt mbl.is: Hekt­ar­inn seld­ur á 2,5 millj­ón­ir í stað 20 millj­óna

Sigurður Ingi óskaði fyrr í dag eftir umræðum við fjármálaráðherra til að ræða sölu á landinu til Garðabæjar. Hann benti m.a. á að árið 2002 hafi verð á hektara verið um 10 milljónir króna. Á núvirði væri það rúmlega 20 milljónir. Nú hefði ríkið hins vegar samið um 2,5 milljónir á hektara

Samningurinn mjög sanngjarn

Benedikt segir að salan á Vífilsstaðalandinu sé mjög gott mál.

„Við erum að vinna með bæjarfélögunum til þess að auka framboð á húsnæði. Garðabær ætlar að skipuleggja 12-1.500 íbúða byggð á landinu, sem er góð viðbót. Sumum finnst að við hefðum átt að selja landið til braskara. Það höfðar ekki til mín, þó svo að einhverjir aðrir stjórnmálamenn telji slíkt betri kost, því að við viljum halda i íbúðarverði niðri. Endanlegt söluverð kemur ekki í ljós fyrr en búið vitum hvert lóðaverð verður. Ríkið fær bæði greiðslu strax og svo hlutdeild í söluverði þegar líður [lóðir] verða seldar, þannig að samningurinn er mjög sanngjarn. Mér finnst líklegt að það verði margfalt.hærra en það sem greitt var beint,“ skrifar ráðherra.

Hann bendir ennfremur á, að Garðabær hafi skipulagsvald. Landið hafi verið skilgreint sem útivistarsvæði þannig að ríkið hefði ekki getað selt öðrum það undir lóðir, því bærinn einn hafi skipulagsvald.

Ekkert mælir á móti því að þarna verði seinna byggður spítali

„Þannig að það er ekki nokkur vafi á því að þetta er góð ákvörðun. Ekkert mælir á móti því að þarna verði seinna byggður spítali, en þá þurfa menn að taka ákvörðun um það fljótlega. Nú er búið að ákveða að byggja spítali búið Hringbraut og við byrjum á því,“ skrifar Benedikt.

Þá segir hann að það sé merkilegt að Sigurður Ingi skuli ekki muna að hann hefur margoft samþykkt heimild í fjárlögum til þess að selja þetta land. „Þannig að hann hefur oft fengið tækifæri til þess að mótmæla slíkri sölu, meðal annars sem forsætisráðherra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert