16 ára með byssu föður síns

Mikill viðbúnaður var vegna piltsins í gærkvöldi.
Mikill viðbúnaður var vegna piltsins í gærkvöldi. mbl.is/Júlíus

Sextán ára piltur var handtekinn í Breiðholti skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld en hans hafði verið leitað frá því um kvöldmatarleytið.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að ungur maður með skotvopn væri á ferðinni í Breiðagerði í Reykjavík. Fjölmennt lið lögreglunnar leitaði að piltinum og naut við það aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Hann fannst svo hjá ættingjum sínum í Breiðholti en þeir gerðu lögreglu viðvart og gaf pilturinn sig fram mótþróalaust. Hann var síðan færður á viðeigandi stofnun.

Pilturinn, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, var með hlaðna skammbyssu í fórum sínum en hana hafði hann tekið ófrjálsri hendi. Faðir piltsins er skráður fyrir byssunni og hefur fyrir henni tilskilin leyfi. Unnið er að rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert