Norsk Hydro: Framkvæmdaaðilar sammála um nauðsyn þess að fá þriðja aðila

Upplýsingafulltrúi Norsk Hydro, Helge Stiksrud, segir í samtali við netútgáfu norska blaðsins Aftenposten í dag að fyrirtækið hafi ekki lagt fyrirhugaðar framkvæmdir á Íslandi á hilluna. Stiksrud segir að Norsk Hydro hafi beðið um frest til að útfæra breiðari eignaraðild. Norsk Hydro á helmingshlut í Reyðaráli á móti Hæfi.

Hann segir að þeir sem að framkvæmdunum komi séu sammála um nauðsyn þess að fá þriðja aðila í verkið. Frétt Aftenposten
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert