Hættur með Fjölni

Hallgrímur Brynjólfsson.
Hallgrímur Brynjólfsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hallgrímur Brynjólfsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna í körfubolta hjá Fjölni.

Hallgrímur óskaði sjálfur eftir því að losna undan samningi við félagið en Fjölnir lenti í 8. sæti í úrvalsdeild.

Hallgrímur tók við liðinu af Kristjönu Eir Jónsdóttur fyrir yfirstandandi tímabil. Fyrir það þjálfaði hann Hamar-Þór í 1. deild en hann hefur einnig þjálfað Njarðvík Hamar og yngri landslið Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert