Kaupin á VAW hafa áhrif á þátttöku Norsk Hydro í byggingu álvers á Reyðarfirði

mbl.is
mbl.is mbl.is

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra lýsti því yfir í upphafi fundar á Alþingi eftir hádegi í dag að skv. upplýsingum forráðamanna Norsk Hydro hefðu kaup þess á þýska álfyrirtækinu VAW mikil áhrif á fjárfestingargestu Norsk Hydro og það hefði áhrif á þátttöku fyrirtækisins í byggingu álvers á Reyðarfirði.

Ráðherra sagði: "Vegna umræðna sem urðu við upphaf þingfundar í gær um framgang frumvarps laga um virkjun Jökulsárdal á Fljótsdal og Jökulsárá Dal og stækkun Kröfluvirkjunar vil ég taka eftirfarandi fram: Í samtölum íslenskra stjórnvalda á síðustu dögum við forráðamenn Norsk Hydro hefur komið fram að kaup fyrirtækisins á þýska álfyrirtækinu VAW nú nýlega hafa mikil áhrif á fjárfestingargetu fyrirtækisins, að minnsta kosti fyrst um sinn. Þessi staða hefur að mati forráðamanna Norsk Hydro áhrif á þátttöku fyrirtækisins í byggingu álvers í Reyðarfirði þar sem ákvörðun um þátttöku samkvæmt gildandi tímaáætlun þarf að liggja fyrir í síðasta lagi þann 1. september. Og sá tímarammi kunni, í ljósi kaupanna á VAW, að vera of knappur. Nú er unnið að gerð yfirlýsingar um málið þar sem leitast verður við að eyða óvissu og gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til þess að tímaáætlanir raskist sem minnst. Ég vænti þess að sú yfirlýsing geti legið fyrir í upphafi næstu viku. Ég vil taka það fram hér að sú staða sem nú er komin upp kemur íslenskum stjórnvöldum í opna skjöldu. Áður höfðu stjórnvöld verið fullvissuð um að fjárfestingar í hinu þýska fyrirtæki hefðu ekki áhrif á þátttöku í Noral-verkefninu." Ráðherra sagði að þar sem fyrrnefnt frumvarp, um virkjun Jökulsár í Fljótsdal og Jökulsár á Dal og stækkun Kröfluvirkjunar, hefði verið afgreitt úr Iðnaðarnefnd "eftir ítarlega og góða vinnu legg ég áherslu á að það verði að lögum sem allra fyrst. Það er mikilvægt að ekki standi á íslenskum stjórnvöldum og háttvirtu Alþingi til að ná markmiðum um uppbyggingu stjóriðju á Austurlandi. Allir aðilar sem komið hafa að málinu telja að hér sé um að ræða hagkvæmt verkefni og því er ég þess fullviss að af því verði."
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert