Gera hlé á leitinni

Sex eru taldir af eftir slysið.
Sex eru taldir af eftir slysið. AFP/Tasos Katopodis

Viðbragðsaðilar hafa gert hlé á leit í ánni Patapsco eftir að flutn­inga­skip rakst á brúna Franc­is Scott Key í banda­rísku borg­inni Baltimore með þeim af­leiðing­um að brúin hrundi. Talið er að sex séu látnir. 

Aðfaranótt þriðjudags fékk lögreglan í Baltimore tilkynningu um að brúin hefði hrunið að hluta. 

Talið er að átta verkamenn, sem störfuðu að næturlagi við holufyllingar í brúnni, hafi fallið í ána. 

Tveimur verkamönnum var bjargað úr ánni, annar var ómeiddur en hinn alvarlega slasaður.

Sex er enn saknað og eru þeir taldir af í ljósi þess hve langt er liðið frá því að brúin hrundi. Hefur nú hlé verið gert á leitinni að þeim.

Skipið varð aflvana skömmu fyrir slysið 

Bandaríska alríkislögreglan (FBI) og aðrar stofnanir hafa lagt áherslu á að ekki hafi verið um hryðjuverk að ræða heldur einungis slys. Þá hefur jafnframt komið fram að hrun brúarinnar hafi ekkert með burðarvirki hennar að gera. 

Í tilkynningu frá hafnarstjórn Baltimore segir að skipið hafi orðið aflvana skömmu áður en það skall á brúna. Fyr­ir vikið gat áhöfn­in ekki stýrt stefnu skips­ins.

Enn frem­ur seg­ir að áhöfn­in hafi varpað akk­er­inu þegar mönn­um varð ljóst að skipið myndi skella á brúnni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert