Weinstein hlaut 16 ára dóm

Harvey Weinstein árið 2020.
Harvey Weinstein árið 2020. AFP/Johannes Eisele

Kvikmyndaframleiðandinn fyrrverandi, Harvey Weinstein hefur verið dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að nauðga konu á hótelherbergi í Beverly Hills í ríkinu Kaliforníu. Þar með aukast líkurnar á því að hann muni eyða því sem eftir er lífsins á bak við lás og slá.

Nauðgunin átti sér stað fyrir áratug síðan. Dómstóll í borginni Los Angeles fyrirskipaði að Weinstein skyldi afplána dóminn eftir að hann hefur afplánað 23 ára dóm sem hann hlaut fyrir önnur kynferðisbrot í borginni New York.

Weinstein, sem mætti í dómsalinn í hjólastól, grátbað dómarann um miskunn . „Ekki dæma mig í lífstíðarfangelsi. Ég á það ekki skilið. Það er svo margt rangt við þetta mál,“ sagði hann.

Lögmenn Weinsteins ætla að áfrýja málinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka