Macchiarini ákærður í Svíþjóð að nýju

Macchiarini með plastbarka.
Macchiarini með plastbarka.

Ítalski skurðlæknirinn Paolo Macchiarini hefur verið ákærður af sænska ríkinu að nýju, í þetta sinn fyrir alvarlega líkamsárás. Saksóknarar segja að skurðaðgerðir hans hafi verið gerðar í tilraunaskyni og hafi verið ólöglegar.

Macchiarini varð heims­fræg­ur eft­ir að hann græddi plast­barka í Erít­r­eu­mann­in­n And­emariam Tek­les­en­bet Beyene, sjúk­ling Tóm­as­ar Guðbjarts­son­ar skurðlækn­is, árið 2011 þegar hann starfaði á Karol­inska sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi. Hann græddi plast­barka í tvo sjúk­linga til viðbót­ar í Svíþjóð en all­ir þrír sjúk­ling­arn­ir eru nú látn­ir.

Sænska ríkið höfðaði upphaflega mál gegn Macchiarini fyrir að hafa valdið dauða sjúklinganna, en ákærurnar voru að endingu felldar niður vegna þess að ekki tókst að sanna að plastbarkarnir hefðu valdið dauða sjúklinganna.

Macchiarini var svo dæmdur í 16 mánaða fangelsi í heimalandi sínu, Ítalíu, fyrir skjalafals og að mis­nota aðstöðu sína þegar hann starfaði á spít­ala í Flórens.

Rann­sókn­ar­nefnd, sem skipuð var af for­stjóra Land­spít­al­ans og rektor Há­skóla Íslands, komst að þeirri niður­stöðu árið 2017 að Macchi­ar­ini hefði blekkt Tóm­as Guðbjarts­son í aðdrag­anda aðgerðar­inn­ar á Beyene.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert