Tom Hagen handtekinn

Anne-Elisabeth Hagen var rænt af heimili sínu 31. október 2018. …
Anne-Elisabeth Hagen var rænt af heimili sínu 31. október 2018. Ekkert hefur spurst til hennar síðan. AFP

Norska lögreglan handtók í morgun Tom Hagen, eiginmann Anne-Elisabeth Hagen sem hefur verið saknað á annað ár. Norska dagblaðið VG greinir frá þessu og hefur fengið staðfest hjá lögreglu að búið sé að girða af heimili þeirra hjóna og tæknideild lögreglunnar sé þar að störfum.

Anne-Elisa­beth Hagen hvarf spor­laust af heim­ili sínu í októ­ber 2018 og hef­ur verið leitað síðan. Fyrst var talið að hún hefði verið num­in á brott og heimtuðu meint­ir mann­ræn­ingj­ar lausn­ar­gjald en eig­inmaður henn­ar er einn auðug­asti maður Nor­egs. 

Samkvæmt fréttum norskra fjölmiðla var Hagen handtekinn klukkan 8:30 að staðartíma í morgun, klukkan 6:30 að íslenskum tíma. Lögregla stöðvaði hann þar sem hann var á leið frá heimili þeirra hjóna í Sloraveien í Lørenskog á leið til vinnu í Futurum.

Samkvæmt VG lokaði lögregla af svæðinu og voru fjölmargir lögreglubílar á staðnum þegar aðgerðin fór fram. Þegar fréttamenn norska ríkisútvarpsins komu á staðinn var búið að fjarlægja bifreið Hagen og aðgerðum lokið. 

Skömmu eftir handtökuna fór lögregla bæði á heimili þeirra Anne-Elisabeth og Tom Hagens og skrifstofu hans í Futurum og stendur yfir húsleit þar. 

Að sögn lögreglu verður boðað til blaðamannafundar klukkan 10:30, klukkan 8:30 að íslenskum tíma. 

Fram kemur í fréttum norska fjölmiðla að Tom Hagen hafi alla tíð verið samvinnuþýður lögreglu vegna hvarfs eiginkonu hans. Hann hefur haldið því fram að innlendir glæpamenn beri ábyrgð á hvarfi Anne-Elisabeth og að þeir hafi krafist lausnargjalds.

Frétt VG

Frétt NRK

Frétt Aftenposten 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert