Skógareldarnir glæpavettvangur

Miklir skógareldar sem hafa ógnað íbúabyggð í Sydney um helgina eru væntanlega af mannavöldum og talið er að vísvitandi hafi verið kveikt í. Áströlsk yfirvöld hafa staðfest þetta. BBC greinir frá. Lögreglan í Sydney hefur nú skilgreint eldana sem glæpavettvang.

Fjöldi fólks þurfti að yfirgefa heimili sín um helgina vegna eldanna, en talið er að dregið hafi úr hættunni. Slökkviliðsstjóri sem barist hefur við eldana ásamt fjölmennum hópi slökkviliðsmanna segir þá „mjög grunsamlega“.

„Hvernig dirfist einhver að kveikja eld viljandi og stofna þannig slökkviliðsmönnum í hættu og jafnframt ógna samfélaginu hér í kring?“ spyr slökkviliðsstjórinn Shane Fitzsimmons. 

AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka