Að minnsta kosti 90 manns létust í jarðskjálfta sem var 8,1 stig af stærð í Mexíkó fyrir nokkrum dögum. 71 þeirra lést í suðvesturhluta Oaxaca, samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum. Hundruð fjölskyldna hafast við í tjöldum af ótta við frekari eftirskjálfta. Alls hafa jarðskjálftafræðingar greint 721 eftirskjálfta frá því stóri skjálftinn reið yfir. BBC greinir frá.
Jarðskjálftinn er sá stærsti sem hefur mælist í Mexíkó á síðustu öld. Björgunarstarf stendur enn yfir.
Á föstudaginn fór hitabeltisstormurinn Katia yfir austurhluta landsins og að minnsta kosti tveir íbúar létust þegar aurskriður féllu eftir gríðarlega úrkomu.