Það er óhætt að segja að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, hafi vakið athygli þegar að hann mætti í vinnuna í gær.
Hann skartaði þá litríkum jakkafötum sem minna á gömlu góðu stillimyndina sem prýddi sjónvarpsskjái landsmanna hér áður fyrr.
Í færslu á Facebook greinir Guðmundur frá því að honum hafi borist áskorun um að mæta í „galla“ í vinnuna og hann lét slag standa.
Guðmundur var klæddur í gallann í dag þegar hann kynnti verkefnið „Gott að eldast“ ásamt Berglindi Magnúsdóttur verkefnastjóra.
„Við viljum lit í lífið og það má vera gaman!“ skrifar Guðmundur á Facebook.